miðvikudagur, júlí 16, 2008

Eyvindur og Halla...Hulda!

Fyrst var það Jennifer Lopez og Ben Afleck eða Bennifer eins og þau voru kölluð. Svo var það Brad Pitt og Angelina Jolie eða Brangelina. Núna er það Eyvindur og Hulda eða.....Eylda....Huvindur...mhmmm...ehh... Bara Eyvindur og Hulda held ég.
Til hamingju með brúðkaupið. Þetta var æðislegur dagur og það var frábært að geta verið partur af þessu hjá ykkur.
Þrefalt húrra fyrir ykkur...HÚRRA HÚRRA HÚRRA!

P.s Ég vona að sumir sem við þekkjum séu ekki í banni á tjaldsvæðinu vegna hávaða? Allavega svaf ég lítið þá nótt. Og vakna enn með martröð vegna þess sem ég heyrði.

Gíraffar að dúllast