mánudagur, júní 23, 2008

Georg Carlin látinn


Einn færasti uppistandari fyrr og síðar er látinn. Hann dó úr hjartabilun en hann hafði lengi átt við hjartaerfiðleika að stríða.
Ég vil votta grínheiminum samúð mína!!

laugardagur, júní 21, 2008

Nýr bolur

fimmtudagur, júní 19, 2008

Hornafjörður
















Ég fór á dögunum til Hornafjarðar þar sem að ég spókaði mig um og kvað vísur. Reyndar ekki vísur en ég blaðraði mikið. Ákvað að uppistandast smá fyrst að ég var þarna. 18 Manns mættu. Ég fékk fyrir bensíninu. Get ekki kvartað yfir því. Sérstaklega vil ég þakka þýska parinu sem að borgaði sig inn. Þau skildu ekki mikið sem að ég var að segja. Ég vil svo setja þessa mynd sem var tekin á hornafirði af mjög svo hæfileikaríkri stúlku sem á afmæli akkúrat á morgun. Til hamingju með það þúþarnasemveisthverþúert!!

sunnudagur, júní 01, 2008

Símstelari

Ég hef verið rændur því allra heilagasta, símanum mínum! Ef einhver "fann" svartan nokia síma í gær á Hressó á vinsamlegast skilaðu honum því það voru margar upplýsingar inn á honum sem ég þarf nauðsynlega á að halda! Hafðu samband á e-mailið mitt illagga@gmail.com eða skilaðu honum á hressó bara, ég get nálgast hann þar. Engar áhyggjur af kverkataki af hálfu lögreglunnar því eina sem ég hef áhuga á er að fá símann aftur ekki kæra einhvern.

Með litla von í hjarta

Þórhallur símalausi